Klukkan

Auglýsing

Leit

Nýjast á HumorPix

Funny Images, Yoga pants at the gym Funny Images, Your friend needs software upgrades... Funny Images, My buddies dog Colt loves car rides Funny Images, Holy Shit Funny Images, How to go from normal to bat-shit Funny Images, Dry Moustache

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Tilkynning:)

21. janúar 2008 klukkan 17:43

Ég ákvað til öryggis að skella bréfinu sem við sendum í pósti til ykkar inn á síðuna, einhver kunna að hafa ratað á ranga staði. 

Hér kemur það:


Hæ hó fallega fólk!!!        

 

Nú er komið að árgangsmóti 85-og 86 árgangsins.

 

Við ætlum að hittast þann 16. febrúar 2008 og tralla aðeins saman.

 

Mæting er klukkan 16:00 á Pizza Hut í Smáralind. Eftir það hefst fjörið og verður það  heima hjá Hafdísi í Aðalþingi 10 í Kópavogi. 

 

Tilkynna þarf mætingu fyrir 1. febrúar, hvort sem þið komist eða ekki.

 

Þið getið tilkynnt það í SMS-i til Hafdísar  8470267.

 

Fylgist með framgangi mála á argangurinn86.bloggar.is

 

Brjáluð dagskrá verður fram eftir kvöldi.

 

Tekið skal fram að þetta verður makalaust svo að allir geti sleppt af sér beislinuJ

 

Hlökkum til að sjá ykkur öll!

 

Kveðja Hafdís, Herdís, Ingibjörg og Heiður.



Það væri frábært ef að allir sem að skoða þessa síðu myndu bara kvitta undir með nafni og símanúmeri (uppi á frekari upplýsingar síðar að gera)...þá vitum við hverjir vita af síðunni og fínt að fá þau númer sem að okkur vantar..:)

Eins og sést hér að ofan þá verða allir að senda Hafdísi sms fyrir 1. feb. hvort sem að þeir koma eða ekki.

Kv. Herdís:)

 

16 febrúar úje....

07. janúar 2008 klukkan 19:39
Jæjæja

Þá er þetta loksins að verða að veruleika hehe...

Ég og Hafdís hittumst um daginn og komum mynd á þetta.
Boðsmiði verður komin í hús til ykkar í vikunni. 
Það hefur orðið stór breyting á plönum. Vona ég að allir séu sáttir með hana eða taki hana seinna í sátt;)

Breytingin er sú að árgangngsmótið verður í Reykjavík. Það er mun hagkvæmara og langtum minna vesen. Það er of dýrt að leigja rútu ef okkur langar að fara eitthvað eftir partýið. Væri ótrúleg gaman að fara bara öll saman í bæinn eða skella sér bara á Players sem er nálægt partýstaðnum. Þeim sem vantar gistingu geta bara gist hjá mér eða dreift sér á milli þeirra sem búa í bænum. 
Þið þurfið því ekki að borga neitt nema bara fyrir matinn sem að þið greiðið á staðnum.


Ég ætla að biðja alla um að fylgjast vel með síðunni, því kannski mun eitthvað óvænt gerast sem gott er að hafa í huga áður en mætt er á staðinn.

Við ætlum að gera okkar besta í að hafa þetta sem allra skemmtilegast og erum að safna saman fögrum myndum af ykkur öllum, útbúa skemmtilega leiki og kannski eitthvað fleiraGlottandi

Látið endilega vita ef að þið hafið ekki fengið sent boðskort, þá hefur það líklega ratað á rangan stað og því verður kippt í liðinn.


Frekari upplýsingar eru á boðsmiðanum sem er væntanlegur til ykkar allra....

Kv. Herdís:)

Fyrsti hittingur

11. desember 2007 klukkan 20:45

Imba, Heiður og HafdísGlottandi

Ég ætla að bjóða ykkur til mín 20. des í smákökur og meðí...hehe
Einhverntíman eftir fjögur

Við getum þá aðeins byrjað að plana....

P.s ég veit að ég er ekki búin að fá svör frá ykkur Heiður og Imbos..en ég er víst fjarverandi seinni partinn á fimmtudaginn og get því ekki boðið ykkur til mín þá, þó þið séuð nú velkomnar í kaffi til pabba..Glottandi


Að sjálfsögðu eru allir sem eru í þessum bekkjum velkomnir til mín líka....alltaf gaman að fá marga, hvort sem þið viljið hjálpa við planinginn eða fá mínar dýrindis kökur..hehe

Annars þá bara skemmtið ykkur í prófunum, þið sem eruð að standa í því núna!


Herdís

Allar hendur upp!

11. nóvember 2007 klukkan 20:06
Við erum gjörsamlega búin að skíta upp á bak með þetta reunion...
En allt er þá þrennt er....
Hafdís var að koma með þá snilldarhugmynd að stefna á
16 feb!!!
Þá er hvor
ki páskafrí né sumar, lítið um útlandaferðir og annað slíkt...
Þar að auki er febrúar svo fokkleiðinlegur mánuður að þetta er kjörið tækifæri til að gera hann ánægjulegri..
Ég segi bara við skellum okkur á þetta og ekkert rugl;)


Jæja hendur upp, hverjir eru til í þetta og gera þetta þá af alvöru ekkert kjaftæðiGlottandi


Kv. Herdís

Jæja;)

12. september 2007 klukkan 20:28

BrosandiMér sýnist að fólk sé ánægðara með 13. sept.
Það væri æði að geta bara neglt niður dag og ef enginn mótmælir þá segi ég bara að við segjum það og byrjum að plana.
Það eru alltaf einhverjir sem ekki komast, því miður og ég veit að ég kemst ekki þennan dag, en það er nú í góðu lagiGlottandi

Hér er það sem á eftir að gera, ég verð kannski pínu löt að plana fyrst ég kemst ekki, en endilega skiptið þessu á milli ykkar, þá verður þetta svo lítið mál.

Ákveða tímasetningu
Útbúa boðskort
Redda Heiðarskóla
Skanna inn myndir og gera eitthvað skemmtilegt úr þeim
Finna stað fyrir partý
Redda mat
PartýleikirGlottandit.d gera svona kostingar og svona upp á djókið!
Redda rútu, ef að áhugi er fyrir því


Mér dettur ekkert fleira í hug. En þið megið nú samt alveg plata mig í eitthvað ef illa gengurBrosandi

Kveðja HerdísGlottandi

Breytt plön

08. september 2007 klukkan 11:51
Jæja nú megið þið endilega drulla og skíta yfir mig...
Ég og fleiri höfum algjörlega klúðrað plönunarmálum fyrir þetta blessaða reunion.
Það er semsagt ekkert reddí, hvorki húsnæði, matarmál, afþreyingarmál, rúta, myndaslædsjó, bara ekki neittSkömmustulegur
Ég get verið fáránlega dugleg og fengið einhverja í lið með mér og gert gott úr þessu og haft þetta reddí fyrir laugardaginn. En þá er ekki víst að þetta verði nógu vel undirbúið og nógu skemmtilegt.

Svo er önnur hugmynd og endilega drullið yfir hana ef ykkur líst ekki á hana, er vön hverskyns skítkasti, þannig bara don´t be shyUllandi

Ég og Katrín vorum að ræða þetta í gær og upp kom sú hugmynd(frá mér, þannig ekki kenna henni um neitt) að færa þetta yfir á fyrstu helgina í okt.
Þá skal ég lofa að hafa þetta fáránlega skemmtilegt og þið fáið boðskort með réttum fyrirvara, í næstu viku, skal standa við það. Ef þið eruð til í þetta (báðir bekkirnir) þá mega allir taka þátt í undirbúningi og við skulum bara gera þetta fáránlega skemmtilegt.

Til að fá á hreint hvort þið eruð til í þessa breytingu megið þið endilega kommenta með því að segja að þið séuð til eða ekki. Eins og ég segi þá verð ég sko engan vegin persónulega sár ef þið viljið halda ykkur við umtalaða dagsetningu. Þá verður bara allt sett á fullt!

Kv. Herdís

Smá líf að vakna...

30. júlí 2007 klukkan 20:22
Ég vona að sumarið sé búið að vera ánægjulegt hjá öllum...

Það fer að styttast í reunionið okkar og ef allir eru sáttir þá er dagsetningin 15 september!!!

Við eigum samt eftir að redda öllu. Stað til að vera á, hvað við ætlum að gera, mat hehe o.fl.

Ég legg til að við hittumst svona tiltölulega snemma svo við höfum tíma til að gera eitthvað skemmtó.

Endilega kommentið, segið hvenær þið viljið hittast hvað við getum gert o.fl

Kveðja HerdísGlottandi

September it is...

09. apríl 2007 klukkan 17:05
Jæja þá er það komið á hreint að bekkjarmótið okkar eða hvað þetta nú erGlottandiverður haldið í September. Hann fékk átta atkvæði af átta. Þannig ég segi það bara gilt.
Við höfum því ágætis tíma í að plana. En samt ekki það langan, því flestir eiga það nú til að gleyma sér í sumrinu og öllu fjörinu sem því fylgir. Þannig það er bara um að gera að koma með hugmyndir og plana. Þurfum að sjálfsögðu að finna dagsetningu. Ég var að pæla í að setja valmöguleikana í könnun ef að enginn mótmælir. Eru það ekki bara laugardagar sem henta best, eða hvað?

En þess utan þá vil ég bara óska öllum Gleðilegra páska, þó að þeir séu nú að líða undir lok og vona ég allir að hafi étið yfir sig af páskaeggi.

Og fyrir hönd bekkjarins vil ég óska Katrínu innilega til hamingju með frumburðinn!!

Páskakveðja
Herdís

September eða hvað:)

30. mars 2007 klukkan 13:59
Mér sýnist á öllu að við munum hittast í September.
Ég var að spá ef enginn mótmælir að hafa skoðanakönnunina opna fram á næsta föstudag.
 Endilega verið dugleg, þið sem vitið af síðunni að láta þetta berast, bæði linkinn og með kostninguna. Því hvert atkvæði skiptir máli og allir eiga náttúrulega að kjósa það sem þeim finnst, þetta er ekki búið enn og munið að enginn sér hvað þið hakið í.

Ég segi þetta bara vegna þess að fólk verður oft ósátt eftir á.
Endanlegur mánuður verður valinn núna á næstu dögum vonandi bara á föstudaginn 6. apríl og þá vona ég að  allir þeir sem hafa áhuga á að mæta séu búnir að kjósa, við tökum ekki við kvörtunum eftir áGlottandi

só sorrí....

Að lokum vil ég bara óska ykkur góðrar helgar.

Ykkar Herdís

Hvað eigum við að gera:)

19. mars 2007 klukkan 18:59
Ég fór bara að velta fyrir mér hvort þetta væri allt dottið uppfyrirÓákveðinn

Það lýtur allavegana ekki út fyrir að við séum að fara að halda upp á þetta með Skagafólkinu. Eigum við að reyna að gera eitthvað saman, eða hvað?

Ég fékk eina hugmynd í gær, sem verður kannski skotin niður strax, en það er líka bara allt í góðu. Af því þið voruð að tala um að við værum alltof fá um kveldið til að geta haft eitthvað fjör. Mér datt í hug að við myndum reyna að gera eitthvað um kveldið með Kleppi. Ég var með tveim krökkum þaðan í bekk í Kvennó og gæti talað við þau. Mér datt þetta bara í hug, því þá gætum við kannski haft efni á að leygja sal saman og gera eitthvað húllumhæ. Veit ekki alveg hvað þau eru mörg samt. En eins og ég segi þá er allt í góðu þó að þetta verði skotið niðurGlottandi

Þetta var svona eina sem mér datt í hug, fyrst þið voruð að pæla í fámenninu. Jú að sjálfsögðu gætum við gert eitthvað með hinum bekknum, Vésteinsbekk. Ú Vésteinn fær bara heiðurinn af bekknumGlottandi

Látið mig líka vita ef við erum bara hætt við þettaHissa

Ykkar
HerdísBrosandi